Aðeins um mig

Ég er 27 ára og bý með unnustu minni, syni og hundi á Völlunum í Hafnarfirði. Unnusta mín heitir Andrea Hilmarsdóttir og starfar sem veitingastjóri á Moss Restaurant í Bláa Lóninu.  Ég er stoltur Hafnfirðingur og ber sterkar og hlýjar tilfinningar til bæjarins.

Ég hef alla tíð haft metnað og byrjaði ungur að vinna. Ég flutti erlendis 16 ára og stundaði fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Ég hóf snemma fyrirtækjarekstur, hef komið að stofnun ýmissa sprotafélaga í gegnum árin og er í dag eigandi og framkvæmdastjóri Reykjavík Asian. Það er líka gaman að segja frá því að þegar ég var aðeins 18 ára stofnaði ég Reykjanes Tours sem er ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í ferðum á Reykjanesinu og skipurleggur ferðir fyrir ferðamenn. Ég hef því mikla reynslu á ferðum um Reykjanesið og hef séð að það er mikil þörf fyrir frekari uppbygginu á svæðinu. 

Ég tel að Sjálfstæðisflokkinn hafi staðið sig vel í bæjarmálum í Hafnarfirði og er spenntur að fá að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum bæjarins. Bakgrunnur minn og reynsla af rekstri mun án efa koma þar að mjög góðum notum. Reynsla mín í ferðaþjónustu getur líka komið að góðum notum enda tel ég vera tækifæri til að efla ferðaþjónustuna í Hafnarfirði.. 

Ég vil að Hafnarfjörður verði aðlaðandi bær sem lokkar til sín ungar fjölskyldur m.a. með framúrskarandi skólakerfi en auk þess sé ég fjölmörg tækifæri til að efla viðskiptalífið með því að ýta undir nýsköpun og skapa atvinnu. Ég vil tryggja bæjarbúum bætta þjónustu með því að auka áherslu á stafrænar lausnir og styðja á sama tíma við sjálfbærni og umhverfismál.

Ég óska eftir þínum stuðningi

Ég tel mikilvægt að unga kynslóðin taki þátt í uppbyggingu Hafnarfjarðar og tel mig eiga fullt erindi á lista Sjálfstæðisflokksins. Ég gef því kost á mér í 3-4 sæti á lista og óska eftir þínum stuðningi.

Scroll to Top